Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United og enska landsliðsins, verður ekki með gegn Chelsea á morgun.
Jose Mourinho heimsækir sína fyrrverandi lærlinga til Chelsea og þarf að velja leikmannahóp án fyrirliðans.
Jose Mourinho heimsækir sína fyrrverandi lærlinga til Chelsea og þarf að velja leikmannahóp án fyrirliðans.
Sky Sports greinir frá þessu í kvöld og segir að Rooney sé að glíma við smávægileg meiðsli í vöðva.
Rooney er búinn að missa byrjunarliðssæti sitt hjá Rauðu djöflunum en leiddi þó sóknarlínuna í 4-1 sigri á Fenerbahce í miðri viku.
Athugasemdir