Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 23. október 2016 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Ég myndi aldrei selja Rooney
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho segir að hann myndi aldrei selja Wayne Rooney frá Manchester United.

Rooney er búinn að missa byrjunarliðssæti sitt hjá Rauðu djöflunum en þótti standa sig vel sem fremsti maður gegn Fenerbahce í miðri viku, í leik sem Man Utd vann 4-1.

„Ég myndi aldrei taka þá ákvörðun að selja Rooney. Leikmaður af hans stærðargráðu, sem á langa og góða sögu að baki með félaginu, ákveður sjálfur hvenær hann hættir," sagði Mourinho.

„Ég setti Rooney á bekkinn þrjá leiki í röð og það var mjög erfitt fyrir bæði mig og hann, en stundum verður stjórinn að taka erfiðar ákvarðanir ef hann telur þær gagnast félaginu.

„Liðsheildin er alltaf í fyrirrúmi, Rooney er goðsögn hérna en hann er partur af liðsheildinni og verður að sætta sig við ákvarðanir stjórans."

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner