Paul Baker, stuðningsmaður Chelsea, hefur mikið álit á Jose Mourinho, fyrrum stjóra liðsins og núverandi stjóra Manchester United.
Svo mikill aðdáandi að hann hefur nú samið lag um hann.
United og Chelsea mætast einmitt á Stamford Bridge en þangað fer Mourinho í fyrsta skipti sem þjálfari annars félags í ensku úrvalsdeildinni.
Mourinho hefur þrívegis orðið enskur meistari með Chelsea og er því í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins.
Athugasemdir