Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. október 2016 13:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mourinho: Vonandi tek ég aldrei aftur við Chelsea
Mourinho
Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho vonast til að hann muni aldrei taka aftur við Chelsea, þar sem hann langar að vera hjá Manchester United í mörg ár.

Hinn 53 ára gamli Mourinho mun mæta á Stamford Bridge í fyrsta skipti síðan hann var rekinn frá Chelsea í desember eftir skelfilega byrjun á síðustu leiktíð.

Mourinho hefur unnið ensku úrvalsdeildina í þrígang með Chelsea en hann langar ekki að taka við þeim í þriðja skipti.

„Ég vona að ég taki aldrei aftur við Chelsea. Mig langar að vera hjá United í mörg ár. Ég býst ekki við því að stýra öðru félagði í úrvaldseildinni," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner