Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. október 2016 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Eric Bailly gæti verið alvarlega meiddur
Eric Bailly meiddist í dag.
Eric Bailly meiddist í dag.
Mynd: Getty Images
Eric Bailly, miðvörður Manchester United, fór meiddur af velli í 4-0 tapi liðsins gegn Chelsea á Stamford Bridge í dag.

Hann varð þá fyrir hnémeiðslum eftir árekstur við Eden Hazard á 52. mínútu og gat ekki haldið leik áfram.

Jose Mourinho, stjóri United, sagði eftir leik að hann óttaðist að Bailly væri alvarlega meiddur.

Það gerir slæman dag enn verri en United átti lítinn séns gegn góðu liði Chelsea.

Phil Jones er nú þegar meiddur á meðan Chris Smalling er nýkominn til baka eftir meiðsli.

Athugasemdir
banner
banner