Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 23. október 2016 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Simeone: Svona gerist ef maður nýtir ekki færin
Diego Simeone
Diego Simeone
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, þurfti að horfa á eftir toppsætinu í spænsku úrvalsdeildinni í dag eftir 1-0 tap gegn Sevilla.

Það var fyrsta tap Atletico á leiktíðinni en þeir höfðu verið á fljúgandi siglingu fram að leiknum.

Steven N'Zonzi skoraði eina mark leiksins og skaut Sevilla fyrir vikið á topp deildarinnar.

„Þeir kláruðu sitt færi en við hefðum getað skorað oftar en einu sinni í fyrri hálfleiknum. Við nýttum ekki færin okkar og þá getur þetta gerst," sagði Simeone.
Athugasemdir
banner
banner
banner