Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 24. október 2016 18:42
Elvar Geir Magnússon
Sama þjálfarateymi áfram hjá Stjörnunni
Brynjar Björn og Rúnar Páll.
Brynjar Björn og Rúnar Páll.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Stjarnan, sem hafnaði í 2. sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, mun áfram vera með sama þjálfarateymi á næsta ári.

Rúnar Páll Sigmundsson hefur verið aðalþjálfari síðustu árin en hann stýrði Stjörnunni til sigurs í Pepsi-deildinni 2014 og var það fyrsti Íslandsmeistaratitill félagsins í meistaraflokki karla.

Aðstoðarmenn hans verða áfram Brynjar Björn Gunnarsson og Davíð Snorri Jónasson auk þess sem Fjalar Þorgeirsson verður áfram markvarðaþjálfari.

Í sumar hafnaði Stjarnan í 2. sæti Pepsi-deildarinnar.

„Munu þeir Rúnar Páll, Brynjar Björn, Davíð Snorri og Fjalar Þorgeirs mynda eitt öflugasta þjálfarateymi deildarinnar næstu árin," segir á heimasvæði Stjörnunnar á Facebook.

„Samningarnir eru risastórt skref í að auka stöðugleika Stjörnunnar sem eitt besta lið landsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner