Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 24. október 2016 19:12
Jóhann Ingi Hafþórsson
Danmörk: Gulli og félagar töpuðu
Guðlaugur Victor
Guðlaugur Victor
Mynd: Getty Images
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Esbjerg máttu þola tap gegn Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Esbjerg byrjaði þó betur því Awer Mabil kom þeim yfir eftir 24 mínútur. Tveim mínútum seinna var Jonas Borring þó búinn að jafna en það voru einu mörk fyrri hálfleiks.

Midtjylland sá síðan um mörkin í seinni hálfleik en Jako Poulsen og Mikkle Duelund skoruðu þá með stuttu millibili og lokatölur urðu 3-1.

Esbjerg eru því enn á botni deildarinnar með átta stig en Midtjylland er í 3. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner