Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. október 2016 21:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gullknötturinn - Fyrsti Englendingurinn til að fá tilnefningu í 4 ár
Jamie Vardy
Jamie Vardy
Mynd: Getty Images
Jamie Vardy er fyrsti Englendingurinn til að fá tilnefningu fyrir gullknöttinn síðan 2012. .

Framherjinn átti geggjað ár er Leicester City kom heimsbyggðinni í opna skjöldu og vann ensku úrvalsdeildina.

Wayne Rooney fékk tilnefningu árið 2012 og varð hann þá í 15. sæti kosningarnar um besta leikmann heims en hann var í 5. sæti árið á undan.

Það eru 11 ár síðan Englendingur varð í topp þrem en það var Frank Lampard er hann var í 2. sæti á eftir Ronaldinho árið 2005. Michael Owen er síðasti Englendingurinn til að vinna verðlaunin en það var árið 2001.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner