Fylkismenn voru mestu vonbrigðin
Þegar spá Fótbolta.net fyrir Pepsi-deildina á þessu ári er skoðuð eftir mótslok kemur í ljós að efstu þrjú sætin eru skipuð nákvæmlega eins og spáð var. Keppni í deildinni lauk þann 1. október.
Fréttaritarar Fótbolta.net spáðu fyrir mótið en fimm lið enduðu nákvæmlega í þeim sætum sem þeim var spáð. Flest af hinum liðunum eru á svipuðu róli.
Tvö félög skera sig úr. Fjölnir kom mest á óvart og endaði fimm sætum ofar en spáð var. Grafarvogsliðið var stórt spurningamerki fyrir mótið en rétt missti af Evrópusæti í lokin.
Á neikvæðan hátt komu Fylkismenn mest á óvart. Árbæingar lentu fjórum sætum neðar en þeim var spáð og féllu á endanum úr deildinni.
Lokastaðan í deildinni:
1. FH (spáð 1. sæti) | 0
2. Stjarnan (spáð 2. sæti) | 0
3. KR (spáð 3. sæti) | 0
4. Fjölnir (spáð 9. sæti) | +5
5. Valur (spáð 5. sæti) | 0
6. Breiðablik (spáð 4. sæti) | -2
7. Víkingur R. (spáð 6. sæti) | -1
8. ÍA (spáð 10. sæti) | +2
9. ÍBV (spáð 8. sæti) | -1
10. Víkingur Ó. (spáð 11. sæti) | +1
11. Fylkir (spáð 7. sæti) | -4
12. Þróttur (spáð 12. sæti) | 0
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir