Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. október 2016 06:00
Fótbolti.net
Fótbolta Quiz á Hvíta Riddaranum - Yfir 120 þúsund í boði
Mynd: Hvíti Riddarinn
Fótbolta pub quiz Hvíta Riddarans í Mosfellsbæ fer fram klukkan 21:00 í kvöld. Á undan verður hægt að fylgjast með leik Manchester United og Manchester City í enska deildabikarnum.

Spyrill kvöldsins er Magnús Már Einarsson, ritstjóri á Fótbolta.net.

Fyrirkomulag kvöldsins er þannig að tveir aðilar spila saman og svara spurningum sem tengdar eru fótbolta. Þátttökugjald er 1000 kr. á lið (500 kr. á haus) og fer sá peningur í pott sem hægt er að vinna í lok kvölds.

Sigurvegarar kvöldsins draga úr fimm umslögum með ýmsum vinningum. Einn af þeim vinningum er peningaupphæð sem safnast hefur með þátttökugjaldi keppenda.

Slíkt fyrirkomulag byrjaði hjá Hvíta Riddaranum þarsíðasta vetur og er því kominn peningur í pottinn. Peningurinn er nú þegar kominn yfir 120 þúsund krónur.

Viðburðurinn á Facebook
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner