Umboðsmaður knattspyrnumannsins Marco Verratti segir ekkert rétt í sögusögnum þess efnis að leikmaðurinn sé ósáttur hjá franska stórliðinu PSG og vilji leita á ný mið.
Sögusagnir þess efnis komust í hámæli um helgina þegar Verratti var skipt af velli á 59. mínútu í markalausu jafntefli gegn Marseille um helgina.
Eftir að hann var tekinn af velli sást hann eiga í harkalegum orðaskiptum við Unai Emery, þjálfara liðsins.
Eins og fyrr segir hefur umboðsmaður leikmannsins nú stigið fram og þvertekið fyrir sögusagnirnar. Hann segir það ekki í myndinni hjá skjólstæðingi sínum að yfirgefa París. Þá segir hann ennfremur að Verratti vilji vinna Meistaradeildina með félaginu.
Athugasemdir