þri 25. október 2016 20:16
Þorsteinn Haukur Harðarson
Liam Rigdewell tekinn ölvaður undir stýri
Mynd: Getty Images
Enski knattspyrnumaðurinn Liam Ridgewell var í gær handtekinn fyrir ölvunarakstur í Bandaríkjunum.

Ridgewell spilar með Portland Timbers en á Englandi lék hann lengst af með Aston Villa og Birmingham.

The Telegraph greinir frá því að Ridgewell hafi verið handtekinn ásamt Jake Gleeson, markverði Portland, en báðir voru þeir grunaðir um ölvunarakstur.

Báðum var þeim sleppt úr haldi eftir að hafa greitt tæplega 900.000 króna tryggingu en þeir þurfa síðan að mæta aftur fyrir dómara í nóvember.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner