Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósar Alex Oxlaide-Chamberlain eftir sigur liðsins gegn Reading í kvöld. Chamberlain hefur stundum mátt þola mikla bekkjarsetu í gegnum tíðina en byrjaði leikinn í kvöld og þakkaði fyrir sig með tveimur mörkum.
„Einbeitingin er orðin betri hjá honum og hann er mjög ákveðinn í að ná árangri. Hann leggur hart að sér á æfingum og nú skilar það sér á vellinum," sagði Wenger.
Þá sagðist Wenger afar ánægður með að sjá Carl Jenkinson í liðinu á ný en hann hefur ekkert spilað með Arsenal í tvö ár vegna þess að hann fór á lán og meiddist síðan illa.
„Það er frábært að fá hann til baka. Hann stóð sig vel og er greinilega í góðu formi eftir meiðslin."
Athugasemdir