Bastian Schweinsteiger er fastur úti í kuldanum hjá Jose Mourinho en athygli vekur að þýski miðjumaðurinn fékk ekki að vera með á liðsmynd Manchester United fyrir tímabilið.
Einnig er áhugavert að Samfélagsskjöldurinn er fremstur í flokki á myndinn en ekkert sést í FA-bikarinn sem félagið vann í lok síðasta tímabils. Myndina má sjá hér að neðan.
Einnig er áhugavert að Samfélagsskjöldurinn er fremstur í flokki á myndinn en ekkert sést í FA-bikarinn sem félagið vann í lok síðasta tímabils. Myndina má sjá hér að neðan.
Schweinsteiger, sem er 32 ára, fær ekki að æfa með aðalliði United og hefur hann verið að æfa einn á æfingasvæði félagsins.
Samband hans við aðra leikmenn er sagt vera mjög gott en það er orðið ljóst að hann mun ekki spila með þeim aftur og þarf að leita sér að öðru liði.
Þessi fyrrum landsliðsfyrirliði Þýskalands hefur sagt að United verði hans síðasta félag í Evrópu.
Manchester is Red! 🔴
— Manchester United (@ManUtd) October 27, 2016
Get your 2016/17 #MUFC squad photo wallpaper: https://t.co/UiEq6IEu0x pic.twitter.com/ZjOLhJnDpe
Athugasemdir