David Moyes, þjálfari Sunderland, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir hegðun sína í tapinu gegn Southampton í deildabikarnum í gærkvöldi.
Moyes var sendur upp í stúku í leiknum eftir mótmæli við dómara leiksins, Chris Kavanagh en Skotinn vildi þá fá vítaspyrnu sem ekki var dæmd.
Enska knattspyrnusambandið segir Moyes hafa úðað ljótum orðum í garð dómarans en hann hefur frest fram á þriðjudag til að svara kærunni.
Sunderland mætir Arsenal á heimavelli sínum um helgina en liðið neyddist til að vera eina nótt lengur í Southampton en áætlað var þar sem flugið þeirra til Sunderland var frestað vegna þoku.
Athugasemdir