Alessandro Florenzi, leikmaður Roma meiddist í 3-1 sigrinum á Sassuolo í gærkvöldi og verður frá í um sex mánuði.
Hann reif þá vöðva í hnénu en hann var borinn af velli þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum en Francesco Totti kom inná í hans stað.
Hann fór í myndatökur og skoðarnir í dag og ljóst er að Florenzi þarf að fara í aðgerð.
Florenzi er búinn að vera með betri leikmönnum Roma á leiktíðinni og spilað 13 leiki og skorað í þeim eitt mark. Hann var fyrirlði Roma í fjarveru Totti í upphafi leiktíðar.
Athugasemdir