Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. október 2016 16:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Erik Lamela vill framlengja samning sinn við Tottenham
Erik Lamela.
Erik Lamela.
Mynd: Getty Images
Erik Lamela hefur áhuga á að framlengja samning sinn við Tottenham en hann kom til þeirra frá Roma sumarið 2013.

„Ég myndi vilja framlengja samning minn af því að ég er mjög ánægður hérna, mér finnst ég vera hluti af liði sem er að bæta sig. Ég er í hópi með frábærum leikmönnum og mér líður vel í kringum þá," sagði Lamela.

„Það myndi gera mig ánægðan að fá að spila í þessari treyju í fleiri ár. Verð ég næstur til að skrifa undir? Vonum það. Núna hugsa ég bara um að spila og um leikinn gegn Leicester á laugardaginn," sagði Lamela að lokum.

Leikur Tottenham og Leicester hefst klukkan 14:00 á morgun. Tottenham er eina taplausa liðið í ensku úrvalsdeildinni en þeir sitja í 5. sæti deildarinnar einu stigi frá toppsætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner