Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 28. október 2016 22:00
Arnar Geir Halldórsson
Bardsley í frí eftir að afi hans lést
Bardsley í baráttunni
Bardsley í baráttunni
Mynd: Getty Images
Mark Hughes, stjóri Stoke, hefur staðfest að Phil Bardsley hafi fengið frí frá störfum um óákveðinn tíma.

Ástæða þess er að afi Bardsley lést fyrr í þessari viku.

„Við höfum veitt Phil leyfi til að yfirgefa hópinn og vera með fjölskyldu sinni á þessum erfiðu tímum. Við hugsum til hans og fjölskyldu hans og munum leyfa honum að stjórna því algjörlega hvenær hann snýr aftur."

„Hann fær allan þann tíma sem hann þarf og þegar hann er tilbúinn til að snúa aftur verður honum vel tekið,"
segir Hughes.

Stoke mætir Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea á mánudag.

Athugasemdir
banner
banner
banner