Leganes 0 - 2 Real Sociedad
0-1 Willian Jose ('29 )
0-2 Xabi Prieto ('59 )
0-1 Willian Jose ('29 )
0-2 Xabi Prieto ('59 )
Tíunda umferð spænsku úrvalsdeildarinnar hófst í kvöld þegar nýliðar Leganes fengu Real Sociedad í heimsókn að viðstöddum tíu þúsund áhorfendum.
Gestirnir voru töluvert sterkari aðilinn í leiknum og eftir hálftíma leik kom Brasilíumaðurinn Willian Jose þeim yfir.
Eftir klukkutíma leik tvöfaldaði reynsluboltinn Xabi Prieto muninn og fleiri urðu mörkin ekki.
Sociedad þar með komið upp í sjötta sæti deildarinnar en Leganes er eftir sem áður í fjórtánda sæti með tíu stig úr tíu leikjum.
Athugasemdir