Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 28. október 2016 23:00
Arnar Geir Halldórsson
Starf De Boer ekki í hættu
Frank de Boer
Frank de Boer
Mynd: Getty Images
Rob Witschge, umboðsmaður Frank de Boer, segir ekkert til í þeim fréttum að framtíð Hollendingsins sem stjóra Inter Milan hangi á bláþræði.

Inter vann mikilvægan 2-1 sigur á Torino í síðustu umferð en ítalskir fjölmiðlar vilja meina að Inter hafi verið byrjað að leita að arftaka de Boer fyrir þann leik.

„Frank er klárlega að fara halda áfram hjá Inter. Það þarf ekki að ræða þetta. Hann er rólegur og einbeittur að vinnu sinni hjá Inter."

„Honum líður vel í Milan og það sama má segja um fjölskylduna hans. Hann hefur fullkominn stuðning frá félaginu og hann er ekkert á förum,"
segir Witschge.

Inter situr í 10.sæti Serie A eftir tíu leiki og hefur innbyrt fjórtán stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner