Breiðablik 2 - 2 Fjölnir
1-0 Höskuldur Gunnlaugsson ('5 )
1-1 Þórir Guðjónsson ('8 )
1-2 Ingimundur Níels Óskarsson ('25 )
2-2 Ólafur Hrafn Kjartansson ('78 )
1-0 Höskuldur Gunnlaugsson ('5 )
1-1 Þórir Guðjónsson ('8 )
1-2 Ingimundur Níels Óskarsson ('25 )
2-2 Ólafur Hrafn Kjartansson ('78 )
Jafntefli var niðurstaðan þegar Breiðablik og Fjölnir mættust í fyrsta leik Bose mótsins þetta árið í Fífunni í morgunsárið.
Breiðablik, sem endaði í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar síðastliðið sumar, komst yfir eftir fimm mínútna leik þegar Höskuldur Gunnlaugsson skoraði.
Forysta Blika entist þó ekki lengi þar sem þremur mínútum síðar náði Þórir Guðjónsson að jafna fyrir Fjölnismenn. Þeir gulu úr Grafarvogi komust svo yfir á 25. mínútu þegar Ingimundur Níels Óskarsson skoraði og staðan var 2-1 þegar flautað var til hálfleiks.
Blikar sóttu mikið seinni hálfleiknum og náðu að lokum jöfnunarmarkinu, en það kom eftir skot hjá Ólafi Hrafni Kristjánssyni fyrir utan teig sem fór í varnarmann og inn.
Lokatölur 2-2, en þetta var eins og áður segir fyrsti leikur mótsins. Þessi tvö lið eru með Víkingi R. í riðli. Smelltu hér til þess að sjá leikjaniðurröðunina í mótinu.
Í spilaranum má heyra viðtal við Guðmund Steinarsson, nýjan aðstoðarþjálfara Fjölnis, sem tekið var í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7.
Athugasemdir