Heimild: AS
Cristiano Ronaldo, Mesut Özil, Jose Mourinho og fleiri eru allir bendlaðir við skattsvik og peningarþvætti í nýrri rannsókn á skattarskjólum á meðal einstaklinga innan fótboltaheimsins. Tólf fjölmiðlar ætla á næstunni að birta fréttir um skattamál í fótboltanum.
Um stóran leka er að ræða og eru skjölin 18,6 milljón talsins, samkvæmt frétt frá þýska dablaðinu Spiegel, sem birtu fyrstu frétt sína í morgun. Í skjölunum sem munu birtast eru meðal annars samningar leikmanna og annars konar leynilegir samningar.
Um stóran leka er að ræða og eru skjölin 18,6 milljón talsins, samkvæmt frétt frá þýska dablaðinu Spiegel, sem birtu fyrstu frétt sína í morgun. Í skjölunum sem munu birtast eru meðal annars samningar leikmanna og annars konar leynilegir samningar.
Rannsóknin á þessum skjölum hefur staðið yfir síðustu sjö mánuðina og segir
Ronaldo er sagður hafa falið 150 milljónir evra á reikningum í Sviss og Bresku jómfrúaeyjum. Mourinho er þá sagður hafa falið tólf milljónir evra með sama hætti.
Í báðum tilfellum eru skattaundanskotin rakin til umboðsmannsins Jorge Mendes, eins þess valdamesta í fótboltaheiminum. Hann er sagður hafa þróað kerfi til að hjálpa skjólstæðingum sínum að komast hjá því að borga skatta af tekjum þeirra.
Umboðsskrifstofan, sem Mendes rekur, hefur vísað þessum ásökunum á bug og segir ekkert til í þessu. Þar á bæ segja menn að bæði Ronaldo og Mourinho hafi virt skyldur sínar gagnvart breskum og spænskum skattayfirvöldum.
Á næstu vikum munu fjölmiðlar eins og Der Spiegel, The Sunday Times og El Mundo birta fréttir um vændi og misnotkun á börnum í fótboltaheiminum.
Der Spiegel accuses Ronaldo of tax evasion https://t.co/FIdy4EQnf2
— Guillem Balague (@GuillemBalague) December 3, 2016
Athugasemdir