Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. desember 2016 11:23
Magnús Már Einarsson
Verður þetta búningur KR næsta sumar?
Mynd: KR
Hér til hliðar má sjá mynd af nýjum búningi sem KR-inga leika mögulega í næsta sumar í Pepsi-deildinni.

Eins og sjá má er verið að skoða að hafa nýtt útlit á treyjunni en ermarnar yrðu þá hvítar en ekki röndóttar.

KR er að skoða búninga fyrir næsta sumar en ekki er búið að taka neina ákvörðun.

„Þetta er ekkert staðfest. Þetta er fyrsta tillagan á borðinu," sagði Kristinn Kjærnested formaður knattspyrnudeildar KR í samtali við Fótbolta.net í dag.

„Það er alltaf gaman að taka umræðuna en það er ekki búið að negla neitt niður. Kannski verður þetta og kannski ekki."

Hér til hliðar má sjá búninginn sem kemur til greina á næsta ári.

Hér að neðan má sjá búninginn sem KR spilaði í á þessu ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner