Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 07. desember 2016 08:30
Þorsteinn Haukur Harðarson
Fellaini orðaður við West Ham
Mynd: Getty Images
Belgíski knattspyrnumaðurinn Maroune Fellaini gæti farið til West Ham þegar glugginn opnar í janúar.

Evening Standard greinir frá því að West Ham hafi áhuga á að fá Fellaini lánaðan út tímabilið en hann hefur ekki náð að heilla fólk hjá Manchester United í vetur.

Alls hefur Fellaini komið við sögu í 16 leikjum Man. Utd tímabilinu en stuðningsmenn liðsins eru ekki hrifnir.

West Ham er hinsvegar í botnbaráttu og Fellaini gæti hjálpað liðinu fyrir komandi átök.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner