Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. desember 2016 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Van Dijk: Á erfitt með að setja pirringinn minn í orð
Virgil van Dijk var svekktur í leikslok
Virgil van Dijk var svekktur í leikslok
Mynd: Getty Images
Virgil van Dijk, markaskorari Southampton var vissulega mjög pirraður eftir 1-1 jafntefli við Hapoel Beer Sheva í Evrópudeildinni í kvöld en Southampton er úr leik eftir úrslitin.

„Þetta eru svo mikil vonbrigði og sérstaklega ef við lítum á hvernig markið þeirra var. Við getum ekki látið svona hluti gerast. Ég er pirraður og það er erfitt að setja pirringinn minn í orð."

Southampton hefði komst áfram með markalausu jafntefli en Beer Sheva komst yfir, stuttu fyrir leikslok og þá þurfti Southampton að skora tvö.

„Við vildum vinna því að það að reyna að ná markalausu jafntefli getur endað illa. Við fengum færi og sérstaklega í fyrri hálfleik en við nýttum þau ekki nógu vel," sagði hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner