sun 23. janúar 2005 21:58
Bellamy frá Newcastle eftir rifrildi við Souness?
Framtíð Craig Bellamy hjá Newcastle er í uppnámi vegna ósættis milli hans og Grame Souness stjóra liðsins. Bellamy kom til liðsins frá Coventry árið 2001 fyrir 6 milljónir punda en nú er allt vitlaust á St. James´s Park eftir að hann labbaði af æfingu liðsins á fimmtudaginn:

"Ég labbaði burtu af æfingasvæðinu á fimmtudaginn til að tala við stjórann og fólkið sem ræður" útskýrir Bellamy. "Ég hélt að þetta væri útkljáð, ég æfði á föstudaginn eins og venjulega en svo kom ég hingað og sá að ég var ekki einu sinni á bekknum" sagði Bellamy og var þá að tala um leikinn gegn Arsenal í dag.

Graeme Souness er brjálaður út í Velska framherjann: "Craig er ekki ánægður með stöðuna sem hann hefur verið að spila. Hann hefur látið óánægju sína í ljós á kolrangan hátt. Ég er ekki ánægður með Craig. Hann brást mér, liðinu og mikilvægast af öllu; stuðningsmönnunum.

Það gerðist atvik sem varð til þess að ég varð að halda fund milli mín, leikmannsins og stjórnarformannsins. Hann lýsti því yfir að hann væri meiddur á föstudaginn og fór í burtu, síðan var allt í lagi með hann á laugardaginn."
Þetta sagði Souness en Bellamy harðneitaði því að hann væri eitthvað meiddur. Þá er það einnig komið í ljós að Newcastle munu ekki vera að leita sér að framherja en talið er að áhyggjur Bellamy yfir því að missa sæti sitt í liðinu hafi orðið til þess að hann hafi verið óánægður.

"Við erum að reyna að byggju upp liðsanda hér hjá Newcastle og ég er bara tilbúinn að hafa leikmenn í liðinu sem berjast fyrir þeim málsstað" hélt Souness áfram. "Stundum verðurðu að spila í stöðu þar sem þú telur þig ekki vera bestan. Stuðningsmennirnir vilja ekki heyra eitthvað væl í leikmanni sem vill bara spila í ákveðinni stöðu."

En það lítur út fyrir að Bellamy sjái eftir því sem gerst hefur og vilji vera áfram hjá liðinu: "Mér hefur verið sagt að vinna ákveðið verk fyrir liðið, það er það sem ég reyndi að gera" segir Bellamy.

"Við höfum verið orðaðir við nokkra framherja sem virðist vera í forgangi hjá klúbbnum núna. Ég er ekki að spila í minni stöðu og ég vil spila frammi. Það er líklega eigingirni í mér. Ég talaði við stjórann og stjórnarformanninn og þeir sögðu að þeir ætluðu ekki að kaupa nýjan framherja.

Ég mun spila hvar sem er, ég hef sannað það með því að spila 20 leiki í rangri stöðu. Stuðningsmennirnir vita það, þeir hafa séð mig spila í rangri stöðu viku eftir viku. Ég hef ekki kvartað eða kveinað, ég hef bara haldið því áfram."

Slapp
banner