mán 24. janúar 2005 11:08
Hafliði Breiðfjörð
Bellamy fer ekki frá Newcastle
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Freddy Shepherd stjórnarformaður Newcastle sagði í morgun að félagið sé ekki tilbúið að hlusta á tilboð í Craig Bellamy framherja félagsins. Framtíð Bellamy virtist í óvissu eftir að hann lenti upp á kant við Graeme Souness stjóra félagsins fyrir helgi og var svo ekki í leikmannahópnum sem tapaði fyrir Arsenal á laugardag.

En Shepherd sagði: ,,Craig Bellamy er ekki til sölu. Stjórinn og ég höfum fundað með honum og sagt honum það. Við getum ekki komið í veg fyrir að hann sé orðaður við félög en enginn hefur spurt um hann og hann er ekki til sölu hvort eð er."

Sjá einnig:
Bellamy frá Newcastle eftir rifrildi við Souness?

Slapp
banner
banner
banner