mán 24. janúar 2005 18:17
Bellamy: "Souness er lygari" - Verður hann seldur?
Craig Bellamy verður refsað af Newcastle eftir að hann kallaði knattspyrnustjóra sinn lygara. Bellamy var ekki í liðinu sem mætti Arsenal í gær en Souness sagði að leikmaðurinn hefði gert sér upp meiðsli vegna þess hve óánægður hann var með að spila ekki í sinni stöðu sem framherji heldur úti á kantinum.

Souness sagði þá þetta um Bellamy: "Hann lýsti því yfir að hann væri meiddur á föstudaginn og fór í burtu, síðan var allt í lagi með hann á laugardaginn."

Þetta var Walesverjinn ekki sáttur með eins og hann skýrði frá nú seinnipartinn: "Þegar ég heyrði hvað stjórnn var að segja fékk ég sjokk. Ég hugsaði með mér að hann væri ekki bara að fara á bakvið mig heldur var hann líka að ljúga" sagði Bellamy.

Og þessi ummælasúpa virðist ætla að fara í hringi. Næst var komið að Freddy Shepard stjórnarformanni félagsins sem af til kynna að Bellamy yrði hreinlega seldur: "Ég vildi að við gætum leyst þetta Bellamy mál sem fyrst" sagði Shepard.

"Craig labbaði af æfingu á föstudaginn og sagði að hann fyndi til tognunar, en það sem hann lét ekki í ljós var að fyrir æfinguna hafði hann sagt liðsfélögum sínum að hann ætlaði að gera sér upp meiðslin.

Þegar Graeme komst að þessu skipaði hann Bellamy að koma samstundis á fund á skrifstofunni minni. Á fundinum játaði Bellamy allt fyrir Graeme. Hann samþykkti einnig á fundinum að biðjast liðsfélgaga sína afsökunar.

Hann gerði það ekki sem leiddi til þess að hann var ekki valinn í liðið um helgina og ég styð þá ákvörðun heilshugar.

Mér finnst hann vera að svíkja klúbbinn sinn, stuðningsmennina, stjórann og liðsfélaga sína. Hann fær himinhá laun og mér finnst þessi framkoma vera óásættanleg sem og ófagmannleg."


Það er því spurning hvað gerist næst en ef Bellamy heldur áfram að ergja Souness og Shepard er líklegt að hann verði settur á sölulista hjá félaginu.
Slapp
banner
banner