mán 24.jan 2005 18:37 Magnús Már Einarsson,
Pennant til Birmingham (Staðfest)
Pennant í leik með Leeds á síðustu leiktíð.
Birmingham hefur fengið kantmanninn Jermaine Pennant að láni út leiktíðina. Þessi 22 ára gamli leikmaður var tekinn ölvaður undir stýri í gærmorgun og það var því rétt runnið af honum í dag þegar að hann ákvað að fara til Birmingham.

Pennant var í láni hjá Leeds United á síðustu leiktíð en hann hefur aðeins leikið tólf leiki með Arsenal á þessari leiktíð og þar af komið oftast inn á sem varamaður.

Samningur kappans við Arsenal rennur út í sumar en hann kom til liðsins frá Notts County á tvær milljónir punda árið 1999.

Sjá nánar:
Pennant tekinn fullur á bílnum sínum í gær
Nýjustu fréttirnar