Bellamy sektaður um tveggja vikna laun
Craig Bellamy framherji Newcastle fær tveggja vikna sekt frá félaginu eftir ósætti sitt við Graeme Souness stjóra liðsins. Hann verður þó ekki seldur samkvæmt BBC en sektin hljóðar upp á um 80 þúsund pund. Bellamy var orðinn þreyttur á því að spila alltaf á kantinum í stað sinnar uppáhaldssstöðu fremst á vellinum.
Bellamy gekk svo langt að kalla stjóra sinn lygara eftir þessi ummæli: "Hann lýsti því yfir að hann væri meiddur á föstudaginn og fór í burtu, síðan var allt í lagi með hann á laugardaginn" sagði Souness
Og Bellamy svaraði fullum hálsi: "Þegar ég heyrði hvað stjórnn var að segja fékk ég sjokk. Ég hugsaði með mér að hann væri ekki bara að fara á bakvið mig heldur var hann líka að ljúga" sagði Bellamy.
Freddy Shepard stjórnarformaður Newcastle lýsti hegðun Bellamy svona: "Craig labbaði af æfingu á föstudaginn og sagði að hann fyndi til tognunar, en það sem hann lét ekki í ljós var að fyrir æfinguna hafði hann sagt liðsfélögum sínum að hann ætlaði að gera sér upp meiðslin.
Þegar Graeme komst að þessu skipaði hann Bellamy að koma samstundis á fund á skrifstofunni minni. Á fundinum játaði Bellamy allt fyrir Graeme. Hann samþykkti einnig á fundinum að biðjast liðsfélgaga sína afsökunar.
Hann gerði það ekki sem leiddi til þess að hann var ekki valinn í liðið um helgina og ég styð þá ákvörðun heilshugar.
Mér finnst hann vera að svíkja klúbbinn sinn, stuðningsmennina, stjórann og liðsfélaga sína. Hann fær himinhá laun og mér finnst þessi framkoma vera óásættanleg sem og ófagmannleg."


