mið 26. janúar 2005 06:11
Bellamy: "Ég fer pottþétt frá Newcastle"
Leikmenn Newcastle fagna Bellamy
Leikmenn Newcastle fagna Bellamy
Craig Bellamy er nánast örugglega á leiðinni frá Newcastle. Hann nýtti ekki tækifærið til að biðjast afsökunar á ummælum sínum þegar hann kallaði Graeme Souness stjóra liðsins lygara. Hann var sektaður um tveggja vikna laun fyrir vikið sem nemur um 80 þúsund pundum en það er hámarkssekt sem hægt er að gefa leikmanni.

Newcastle hafa þó sagt að þeir muni ekki selja hann en líklega er Bellamy sjálfur að taka síðustu moldina úr skóflinni á sinni eigin gröf með ummælum sem þessum:

"Ég mun ekki biðjast afsökunar af því að ég hef ekki gert neitt rangt" sagði Bellamy í viðtali við Evening Chronicle. "Það er enginn vafi á því að ég er að fara héðan. Ég kvíði því að fara á æfingu af því að ég veit að ég er ekki velkominn."

Bellamy fór í sjónvarpsviðtal í gær þar sem hann kallaði Souness lygara og Freddy Shepard stjórnarformaður liðsins kallaðu Bellamy kjána fyrir að láta sér þetta það til hugar: "Craig Bellamy var kjáni að fara í sjónvarpið með þetta. Við sögðum honum að gera það ekki og að því er við best vitum ráðlagði umboðsmaður hans honum slíkt hið sama."

Steve Horner umboðsmaður Bellamy verður væntanlega á kafi næstu daga til að finna nýtt lið fyrir Bellamy hann hefur þegar verið orðaður við Manchester City, Aston Villa og Liverpool sem gætu þurft á nýjum framherja að halda ef Florent Sinama Pongolle verður frá út tímabilið.
Slapp
banner