Stoke eina liðið sem hefur sýnt Bellamy áhuga
Freddy Shepherd formaður Newcastle hefur játað að sóknarmaðurinn Craig Bellamy megi fara frá liðinu en aðeins fyrir rétta upphæð. Eins og flestir vita þá er Bellamy kominn í ónáð hjá Graeme Souness stjóra Newcastle eftir að hafa gert sér upp meiðsli þegar að hann átti að spila á hægri kanti og einnig fyrir að kalla Souness lygara.
Aston Villa, Liverpool og Manchester City eru talinn hafa áhuga á Bellamy en hinsvegar er talið að Stoke sé eina liðið sem spurst hefur fyrir um kappann.
,,Það hefur aðeins verið ein fyrirspurn og hún var um lánssamning en það hefur ekkert stórlið lýst yfir áhuga á að fá hann. Ef eitthvað svoleiðis mun gerast munum við hugsa um tilboðið." Sagði Shepherd.
Þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé að fara að loka eru engin lið æst í að fá Bellamy en Sheperd bætti við ,,Enginn er að sparka á hurðina mína og fax tækið er hljótt."
Sjá einnig:
Craig Bellamy í fréttaleit

