fös 28. janúar 2005 06:43
Worthingon langar mikið í Bellamy
Nigel Worthington stjóri Norwich væri meira en til í það að fá Craig Bellamy að láni út tímabilið. Bellamy spilaði áður með Norwich en eins og flestir vita liggur framtíð kappans í lausu lofti eftir deilur við Newcastle.

“Ég vildi gjarnan fá hann hingað” sagði Worthington. “Hann er gæðaleikmaður, það er engin spurning um það. Þetta er bara spurning um að láta hann vera í réttu umhverfi þar sem hann er ánægður.

Ég veit að honum yrði tekið mjög, mjög vel hérna og það með réttu. Hann stóð sig frábærlega með Norwich á tímum sem voru mjög erfiður fyrir klúbbinn.”


Félagaskiptaglugginn lokar um leið og janúarmánuði lýkur og því verða lið að hafa hraðann á ef þau ætla að fá leikmenn í tæka tíð. Ekki er líklegt að Newcastle séu tilbúnir að lána Bellamy en þeir hafa straðfest að hann verði seldur fáist ásættanlegt boð í hann.

Þrátt fyrir áhugann er Worthington ekki bjartsýnn á að fá Bellamy að láni: “Mér þykir mjög ólíklegt að Newcastle séu tilbúnir að lána hann. Hann verður annaðhvort áfram hjá Newcastle eða þá að sæmileg upphæð verður boðin í hann og hann færir sig alveg um set."
Slapp