Souness: "Bellamy spilar aldrei aftur fyrir mig"
Graeme Souness stjóri Newcastle hefur sagt Craig Bellamy að hann muni aldrei spila fyrir sig framar! Bellamy ásakaði Souness um að vera lygara eftir mikið orðaskak þeirra í vikunni.
Það verður því að teljast líklegt að hann fari frá liðinu nú í janúar en Stoke, Portsmouth og Norwich vildu öll fá hann að láni en Newcastle neitaði því. Liverpool var einnig orðað við Bellamy en það virðist ekki hafa átt við rök að styðjast. Þá hafa Blackburn og Birmingham einnig áhuga á sóknarmanninum.
Ekkert kaupverð hefur heyrst í sambandi við sölu á Bellamy sem metinn var á um 10 milljónir punda. Sú tala hefur líklega lækkað mjög mikið eftir ruglið.
"Hann mun aldrei spila fyrir mig framar" sagði Souness við BBC útvarpið í Newcastle. "Hann kemst ekki upp með það að fara í sjónvarpið og ásaka mig um lygar"
Sjá einnig:
Bellamy frá Newcastle eftir rifrildi við Souness?
Bellamy fer ekki frá Newcastle
Bellamy: "Souness er lygari" - Verður hann seldur?
Bellamy sektaður um tveggja vikna laun
Bellamy: "Ég fer pottþétt frá Newcastle"
Stoke eina liðið sem hefur sýnt Bellamy áhuga
Worthingon langar mikið í Bellamy

