fös 28. janúar 2005 17:45
Hafliði Breiðfjörð
Kauptilboð Birmingham í Bellamy samþykkt
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Birmingham City hafa komist að samkomulagi við Newcastle United um 6 milljón punda kaupverð á welska framherjanum Craig Bellamy. Bellamy sem er 25 ára gamall lenti upp á kant við Graeme Souness stjóra Newcastle og var eftir það sagt að hann fengi aldrei að spila aftur undir hans stjórn hjá félaginu.

Bellamy ásakaði Souness um að ljúga þegar hann var ekki í hópnum gegn Arsenal um síðustu helgi og Souness svaraði með því að neita að velja hann aftur.

,,Birmingham hafa fengið leyfi til að ræða við leikmanninn," sagði talsmaður Newcastle.
Slapp
banner
banner