Ársþing KSÍ sem verður haldið í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar verður það fréttnæmasta á seinni árum. Geir Þorsteinsson stígur af stóli formanns og tveir hafa staðfest framboð; það eru Björn Einarsson formaður Víkings og Guðni Bergsson fyrrum landsliðsmaður.
Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon um komandi ársþing í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
Meðal annars var rætt um formannsslaginn, hvernig kosningu er háttað, brotthvarf Geirs, helstu umræðuna í aðdraganda ársþingsins, töfluröðun Pepsi-deildarinnar og fleira.
Hlustaðu á umræðuna í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir