mán 31. janúar 2005 06:17
Hafliði Breiðfjörð
Verður Bellamy áfram hjá Newcastle?
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Craig Bellamy gaf í skyn í gær að hann yrði áfram hjá Newcastle United og reyndi að ná sáttum við Graeme Souness stjóra félagsins í stað þess að ganga til liðs við Birmingham á 6 milljónir punda. Bellamy ræddi við Steve Bruce stjóra Birmingham á laugardag í kjölfar þess að félögin komust að samkomulagi við kaupverð og í gær sagði hann:

,,Ég veit ekki enn hvort ég muni fara. Kannski sit ég hérna baka til og sé hvort það verði breyting á stjóra áður en ég fæ tækifæri til að spila fyrir Newcastle á ný."

Souness hefur sagt að hann muni aldrei velja Bellamy aftur í kjölfar þess að hann sakaði sig um að ljúga um afhverju hann var ekki með gegn Arsenal um helgina.

Fjölmörg erlend lið eru talin hafa haft samband við Newcastle og viljað leikmanninn á láni en jafnvel er talið að Bellamy sjálfur vilji sjá fleiri tilboð frá liðum í ensku úrvalsdeildinni.

Félagaskiptaglugginn lokar hinsvegar í dag svo ef eitthvað gerist þá mun það verða fyrir miðnætti í dag.
Slapp
banner
banner