Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 16. janúar 2017 23:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Middlesbrough að fá framherja Chelsea
Bamford í leik með Middlesbrough
Bamford í leik með Middlesbrough
Mynd: Getty Images
Patrick Bamford, framherji Chelsea, er langt kominn með að ganga frá félagsskiptum til Middlesbrough.

Antonio Conte, stjóri Chelsea, kallaði Bamford til baka úr láni hjá Burnley fyrir skemmstu og virðist hann nú vera á leið til síns fyrrum félags, Middlesbrough, þar sem hann var á láni tímabilið 2014-15.

Bamford stóð sig vel í Championship deildinni með Boro og skoraði hann 17 mörk, það tímabilið.

Jordan Rhodes mun að öllum líkindum yfirgefa Middlesbrough í staðinn en mörg félög í Championship deildinni hafa áhuga á Rhodes.
Athugasemdir
banner