Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. janúar 2017 18:30
Magnús Már Einarsson
Demichelis til Malaga (Staðfest)
Martin Demichelis.
Martin Demichelis.
Mynd: Getty Images
Martin Demichelis, fyrrum varnarmaður Manchester City, hefur gengið til liðs við Malaga á Spáni.

Demichelis er 36 ára gamall en hann gerði samning við Malaga út tímabilið.

Demichelis hafði verið án félags í nokkra daga en Espanyol leysti hann undan samningi fyrr í mánuðinum.

Argentínumaðurinn hafði einungis spilað tvo leiki með Espanyol á tímabilinu og því fékk hann að fara þaðan.

Demichelis spilaði með Malaga frá 2011 til 2013 áður en hann fór til Manchester City. Hann gekk síðan til liðs við Espanyol síðastliðið sumar.
Athugasemdir
banner
banner