Vangaveltur hafa verið um framtíð Króatans Ivan Rakitic hjá Barcelona en leikmaðurinn hefur þurft að sitja á bekknum undanfarið.
Rakitic er hins vegar ekki á því að gefast upp hjá Barcelona og segist hann ekki vera í fýlu við Luis Enrique þjálfara liðsins, þvert á móti, því hann segist stökkva fram af brú fyrir manninn sem fékk hann til Barcelona.
Króatinn gekk til liðs við Barcelona frá Sevilla árið 2014 og var Rakitic einn af fyrstu kaupum Enrique.
Aðalmarkmið Rakitic núna er að vinna sér fast byrjunarliðssæti hjá spænska stórliðinu.
„Luis Enrique hefur hjálpað mér gríðarlega mikið, hann gaf mér sjálfstraust um leið og ég kom og liðsfélagar mínir gerðu það einnig. Það var Enrique sem bað félagið um að fá mig. Ef ég þyrfti að stökkva fram á brú fyrir hann, þá myndi ég ekki hika við það," sagði Rakitic um þjálfarann sinn.
Athugasemdir