Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. janúar 2017 19:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
AC Milan vil fá Deulofeu
Gerard Deulofeu gæti verið á leið til AC Milan
Gerard Deulofeu gæti verið á leið til AC Milan
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið AC Milan hefur talað við Everton um þann möguleika að fá kantmanninn Gerard Deulofeu á láni út tímabilið.

Spánverjinn ungi gekk til liðs við Everton frá Barcelona árið 2015 en leikmaðurinn var einnig á láni hjá félaginu tímabilið 2013-14.

Deulofeu hefur lítið komið við sögu hjá félaginu síðan Ronald Koeman tók við og hefur hann aðeins spilað 13 leiki á tímabilinu. Þá hefur hann verið utan hóps í undanförnum leikjum.

AC Milan hefur staðfest að viðræður séu í gangi við Everton þótt svo ekkert samkomulag hafi náðst á milli félagana.

Deulofeu er uppalinn hjá Barcelona og hefur einnig verið á láni hjá Sevilla.
Athugasemdir
banner
banner
banner