Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. janúar 2017 17:45
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Chelsea á höttunum eftir leikmanni Middlesbrough
Chelsea vilja fá Adama Traore
Chelsea vilja fá Adama Traore
Mynd: Getty Images
Topplið Chelsea hafa spurst fyrir um kantmann Middlesbrough, Adama Traore samkvæmt heimildum Sky.

Traore gekk til liðs við Middlesbrough frá Aston Villa á lokadegi sumargluggans og en þessi snöggi leikmaður gæti nú verið á leið til Chelsea.

Traore kemur frá Spáni og er hann uppalinn hjá Barcelona en hann hefur spilað 14 leiki með Middlesbrough á tímabilinu.

Antonio Conte, þjálfari Chelsea er nú að reyna stækka leikmannahópinn sinn eftir að miðjumennirnir Oscar og John Obi Mikel yfirgáfu félagið og fóru í kínversku úrvalsdeildina.

Þá er Patrick Bamford, leikmaður Chelsea nálægt því að ganga til liðs við Middlesbrough
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner