Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. janúar 2017 18:28
Elvar Geir Magnússon
Sara Björk með nýjan samning við Wolfsburg
Mynd: Getty Images
Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaðurinn öflugi, hefur skrifað undir nýjan samning við þýska stórliðið Wolfsburg til ársins 2019.

Sara gekk í raðir Wolfsburg í fyrra eftir að hafa leikið með Rosengard í Svíþjóð.

Wolfsburg er sem stendur í fjórða sæti þýsku kvennadeildarinnar.

Sara er fædd 1990 og á 98 A-landsleiki fyrir Ísland. Hún var ein af þeim tíu íþróttamönnum sem tilnefndir voru til titilsins íþróttamaður ársins 2016.



Athugasemdir
banner
banner
banner