Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. janúar 2017 22:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Mike Dean færður niður í Championship deildina
Mike Dean dæmir í Championship deildinni næstu helgi
Mike Dean dæmir í Championship deildinni næstu helgi
Mynd: Getty Images
Dómarinn umdeildi, Mike Dean hefur verið færður niður í Championship deildina eftir lélegan desember mánuð í ensku úrvalsdeildinni.

Dean átti umdeilda dóma í desember þar sem hann t.d. rak Sofiane Feghouli leikmann West Ham útaf í leik gegn Manchester United.

Dean hefur dæmt tvo leiki á þessu ári, leik Tottenham og Aston Villa í enska bikarnum og leik Stoke og Sunderland í úrvalsdeildinni síðustu helgi.

Nú verður Dean hins vegar að láta það duga að dæma í Championship deildinni næstu helgi en hann mun dæma leik Leeds og Barnsley.

Leeds eru í 3. sæti deildarinnar en Barnsley sitja í 10. sæti.
Athugasemdir
banner
banner