Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. janúar 2017 08:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ranieri vill að Conte vinni titilinn
Ranieri vill sjá Conte vinna titilinn
Ranieri vill sjá Conte vinna titilinn
Mynd: Getty Images
Ítalinn Claudio Ranieri, stjóri Englandsmeistara Leicester vill að landi sinn Antonio Conte, stjóri Chelsea sigri ensku úrvalsdeildina þetta tímabil.

„Sem fyrrverandi þjálfari Chelsea og aðdáandi Ítalíu, þá vona ég að Conte vinni titilinn í ár," sagði Ranieri um landa sinn.

Leicester eru í 15. sæti úrvalsdeildarinnar og munu án efa ekki verja titilinn sinn.

Chelsea er á toppi deildarinnar með sjö stiga forskot á Tottenham og Liverpool.

„Conte hefur sýnt að ítalski þjálfaraskólinn hefur varla verið sterkari en nú," sagði Ranieri að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner