Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. janúar 2017 22:48
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ítalski bikarinn: Inter áfram eftir framlengingu
Antonio Candreva skoraði sigurmark Inter
Antonio Candreva skoraði sigurmark Inter
Mynd: Getty Images
Inter 3-2 Bologna
1-0 Jeison Murillo ('33)
2-0 Rodrigo Palacio ('39)
2-1 Blerim Dzemaili ('43)
2-2 Godfred Donsah ('73)
3-2 Antonio Candreva ('98)

Einn leikur fór fram í 16-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í kvöld en það var leikur Inter og Bologna.

Jeison Murillo kom heimamönnum í Inter yfir á 33. mínútu og sex mínútum síðar tvöfaldaði Rodrigo Palacio forystu Inter.

Rétt fyrir hálfleik minnkuðu gestirnir í Bologna muninn með marki frá Blerim Dzemaili. Á 73. mínútu leiksins jafnaði Godfred Donsah svo leikinn og var staðan jöfn eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja.

Í framlengingunni voru heimamenn sterkari og skoraði Antonio Candreva sigurmarkið á 98. mínútu.

Inter mun mæta annað hvort Lazio eða Genoa í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner
banner