Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 18. janúar 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
Man Utd telur góðar líkur á að landa Griezmann
Powerade
Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann.
Mynd: Getty Images
Lukaku er orðaður við Chelsea.
Lukaku er orðaður við Chelsea.
Mynd: Getty Images
Janúar slúðrið er fjörugt í dag líkt og aðra daga.



Manchester United vill halda Zlatan Ibrahimovic (35) í tvö tímabil til viðbótar. (Sun)

Forráðamenn Mancester United eru alltaf að verða bjartsýnni með að Antoine Griezmann (25) komi til félagsins frá Atletico Madrid í sumar. Luke Shaw (21) er hins vegar á förum. (Independent)

Memphis Depay (22) gæti farið frá Manchester United til Lyon á næstu tveimur sólarhringum. (Mirror)

Antonio Conte, stjóri Chelsea, vill fá Alvaro Morata (24) frá Real Madrid til að fylla skarð Diego Costa (28). (Daily Telegraph)

Chelsea gæti líka reynt að fá Romelu Lukaku (23) aftur frá Everton ef Costa fer í sumar. (Miror)

Joe Hart (29) reiknar með að hafa spilað sinn síðasta leik með Manchester City. Hart býst við að vera seldur frá félaginu þegar lánssamningur hans hjá Torino rennur út í sumar. (ESPN)

Leonardo Ulloa (30), framherji Leicester, vill fara. WBA, Hull, Sunderland og Swansea hafa áhuga. (Daily Express)

Patrick Bamford (23), framherji Chelsea, fer í læknisskoðun hjá Middlesbrough í dag. (Teesside Gazette)

Manchester United vill fá Benjamin Mendy (22), vinstri bakvörð Monaco. (Tuttomercatoweb.com)

Everton ætlar að senda AC Milan þau sklaboð að Gerard Deulofeu (22) sé ekki til sölu. (Daily Express)

Allan McGregor (34), markvörður Hull, er á leið til Cardiff á láni út tímabilið. (Sky Sports)

Tottenham þarf að láta enska knattspyrnusambandið vita í lok mars hvort félagið ætli að spila á Wembley á næsta tímabili vegna framkvæmda á heimavelli sínum. (Evening Standard)

Watford ætlar að bjóða í Max Gredel (29), kantmann Bournemouth. (Sun)

Nikola Kalinic (29), framherji Fiorentina, gæti verið á leið til Tianjin Quanjian í Kína á 35 milljónir punda. (Calciomercato.com)
Athugasemdir
banner
banner
banner