Bellamy neitaði Birmingham
Craig Bellamy neitaði Birmingham en Newcastle samþykkti 6 milljón punda boð í sóknarmanninn. Eins og flestir vita lenti Bellamy upp á kant við Graeme Souness stjóra Newcastle en nú lítur út fyrir að hann muni ákveða framtíð sína í sumar þegar hann hefur úr fleiri tilboðum að velja.
Souness sagði í síðustu viku að Bellamy fengi aldrei að spila fyrir sig aftur og það er spurning hvort hann standi við það. Bellamy sagði meðal annars þetta í frétt sem birtist hjá okkur í morgun:
,,Ég veit ekki enn hvort ég muni fara. Kannski sit ég hérna baka til og sé hvort það verði breyting á stjóra áður en ég fæ tækifæri til að spila fyrir Newcastle á ný."
Sjá einnig:
Bellamy frá Newcastle eftir rifrildi við Souness?
Bellamy fer ekki frá Newcastle
Bellamy: "Souness er lygari" - Verður hann seldur?
Bellamy sektaður um tveggja vikna laun
Bellamy: "Ég fer pottþétt frá Newcastle"
Stoke eina liðið sem hefur sýnt Bellamy áhuga
Worthingon langar mikið í Bellamy



