Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. janúar 2017 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Telegraph 
Guardiola fór með leikmenn City í bíó - Sáu verðlaunamynd
Guardiola kíktí í bíó.
Guardiola kíktí í bíó.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Man City, fagnaði 46 ára afmæli sínu með ferð í næsta bíóhús.

Guardiola kíkti ásamt leikmönnum City-liðsins í bíó og þar var farið á verðlaunamyndina La La Land, en sú mynd er að gera það mjög gott um þessar mundir.

Myndin setti met fyrir flest verðlaun á nýafstaðinni Golden Globe-verðlaunahátíð. Í aðalhlutverkum í myndinni eru þau Ryan Gosling og Emma Stone.

Guardiola leit væntanlega á þetta sem góða leið til þess að koma hóp sínum saman eftir 4-0 tap gegn Everton um síðustu helgi.

Andinn í liðinu er væntanlega ekkert sérstakur í augnablikinu, en það er spurning hvort þessi bíóferð hafi kætt menn eitthvað.

Man City er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, tíu stigum á eftir toppliði Chelsea.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner